XXVII. þing Félags íslenskra lyflækna
30. – 31. október 2026 / Harpa
Lyflæknaþing 2026
XXVII. þing Félags íslenskra lyflækna verður haldið dagana 30. og 31. október næstkomandi í Hörpu.
Enn á ný kynnum við með eftirvæntingu og stolti öflugt þing í ráðstefnuhúsi á heimsmælikvarða.
Dagskráin verður að vanda fjölbreytt. Lyflækningar eru ein stærsta sérgrein læknisfræðinnar og segja má að lyflækningar séu mikilvæg kjölfesta íslensks heilbrigðiskerfis.
Þekking á hinum ýmsu sjúkdómum er sífellt að verða meiri og betri og hefur leitt til gríðarlega hraðrar þróunar á nýjum meðferðarúrræðum. Vissulega er það ánægjulegt en getur jafnframt falið í sér nýjar áskoranir.
Á þinginu í ár munum við gera breyttu landslagi ýmissa langvinnra sjúkdóma sérstakan gaum. Bæði hafa nýir slíkir litið dagsins ljós, eins og „POTS“ og „long-Covid“ sem við erum að reyna að varpa betra ljósi á en einnig eru þekktir sjúkdómar sem hafa allt aðrar horfur í dag eins og HIV veirusjúkdómurinn, mergæxli og aðrir illkynja sjúkdómar. Flestar undirsérgreinar glíma við álíka áskoranir sem fylgja slíkum langvinnum sjúkdómum.
Fjarþjónusta og heimaspítali hefur verið að ryðja sér rúms undanfarin ár og sjáum við betur og betur mikilvægi þessa möguleika og hafa lyflækningar verið leiðandi hvað þetta varðar. Tæknilausnir halda áfram að þróast og nú er gervigreind orðin að veruleika sem bæði getur létt okkur lífið en einnig er mikilvægt að við notum hana á réttan hátt. Allt þetta mun vera til umfjöllunar á þinginu í ár.
Klínisk nálgun vandamála verður að sjálfsögðu áberandi með ýmsum málþingum þar sem við förum yfir greiningar sem við viljum alls ekki missa af í okkar starfi, erfið viðfangsefni og klínisk rökleiðsla verður á sínum stað á þinginu.
Erlendir fyrirlesarar munu halda erindi og metnaðarfull dagskrá hjúkrunarfræðinga fer fram í Rimu báða dagana.
Að sjálfsögðu eru vísindin grunnur læknisfræðinnar og því munum við eins og áður leggja áherslu á þau í gegnum allt þingið, m.a. með kynningu vísindaágripa. Þau hafa verið mikilvægur hluti þingsins og verðlaun veitt fyrir bestu ágrip unglæknis, læknanema og annarra fagstétta. Þetta er alltaf frábært tækifæri, ekki síst fyrir unga vísindamenn, til að kynna sínar niðurstöður.
Þingið er ekki síður mikilvægur vettvangur fyrir lækna og annað heilbrigðisfólk til að þétta raðir sínar og eiga góða stund saman. Gleðistund þingsins verður á föstudeginum að loknu þingi og svo enda þingslitin með hátíðarkvöldverði og dansi á laugardagskvöldinu eins og hefð hefur verið.
Það ætti því að vera eitthvað við hæfi fyrir allt það heilbrigðisstarfsfólk sem á erindi á þetta vandaða þing og hvetjum við það til að skrá sig sem allra fyrst.
Hlökkum til að sjá ykkur
Signý Vala Sveinsdóttir
Lokafrestur til að senda inn ágrip er 18. september.
