Sameiginlegt Vísindaþing

12. mars 2027 á Hilton Reykavík

Skurðlæknafélag Íslands
Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag Íslands
Félag íslenskra fæðinga og kvensjúkdómalækna
Fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga
Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga
Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Fagráð hjúkrunar aðgerðasjúklinga

Sameiginlegt vísindaþing ofangreindra félaga verður haldið föstudaginn 12. mars 2027 á Hilton hóteli.

Dagskráin verður að vanda fjölbreytt með sameiginlegum fyrirlestrum fyrir hádegi og eftir hádegi mun hvert félag stýra málstofum tengdum sínu sviði.

Kynning vísindaágripa verður mikilvægur hluti þingsins að venju. Þetta verður því frábært tækifæri, ekki síst fyrir unga vísindamenn, til að kynna sínar niðurstöður.

Fyrir hönd fagfélaganna

Elsa Björk Valsdóttir
formaður Skurðlæknafélags Íslands

Vinsamlegast athugið að ráðstefnugjöldin hækka 6. mars 

Kristjana Magnúsdóttir, verkefnisstjóri skráningar og sýningar
Netfang: kristjana@athygliradstefnur.is

SKRÁNING ÁGRIPA

Leiðbeiningar:

  • Hámarkslengd ágripa miðast við 250 orð með bilum
  • Titill ágripa og nöfn höfunda og stofnana eru ekki talin með
  • Ágrip skulu rituð á íslensku og er ætlast til að vandað sé til orðfæris og efnistaka
  • Lyfjaheiti skal rita með íslenskum rithætti
  • Ágripið skal byggjast upp á eftirfarandi hátt og setja fyrirsagnir fremst þar sem við á: Inngangur, Efniviður og aðferðir, Niðurstöður, Ályktun
  • Heiti ágripa á ekki að vera í hástöfum.
  • Myndir, töflur og gröf verður að senda inn í JPG/BMP/JPEG/GIF eða PNG formati. Hámarksstærð er 13 cm á breidd og 18 cm á hæð og upplausn allt að 150dpi. Skjalið getur ekki verið stærra en 1Mb

Skilafrestur ágripa

Skilafrestur ágripa verður til miðnættis 1 . febrúar.  Tilkynnt um niðurstöður 17. febrúar.